Smurbrauðið fékk lögreglufylgd

Margrét Þórhildur Danadrottning í Hörpu í dag ásamt Guðna Th. …
Margrét Þórhildur Danadrottning í Hörpu í dag ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eigendur veitingastaðarins Jómfrúin við Lækjargötu þurftu aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag til að koma smurbrauði, eða svokölluðu smørrebrød, í samkvæmi þar sem Margrét Þórhildur Danadrottning var á meðal gesta.

Lögreglan hafði víða lokað fyrir umferð um miðbæinn vegna hátíðarhalda í tilefni fullveldisafmælis Íslands og því þurfti Jómfrúin að bregðast við þannig að drottningin fengi smurbrauðið sitt í tæka tíð.

„Þetta var alveg nauðsynlegt. Ég hefði verið mjög sveittur ofan á allt annað sem ég þarf að standa í í dag ef ég hefði þurft að hlaupa með þessa kassa fótgangandi. Maður þurfti að geta nýtt sér samgöngur til að komast á áfangastað því þetta var þannig magn,“ segir Jakob E. Jakobsson, framkvæmdastjóri og annar eiganda Jómfrúarinnar, í samtali við mbl.is, en RÚV greindi fyrst frá málinu.

Margrét Danadrottning er stödd hérlendis á vegum íslenskra stjórnvalda og mun hún ávarpa gesti í Eldborgarsal Hörpu í kvöld.

Jakob Einar og félagar á Jómfrúnni.
Jakob Einar og félagar á Jómfrúnni. mbl.is/Golli

Alls voru átta tegundir af smurbrauði í snittuformi útbúnar fyrir drottninguna og er þetta í fyrsta sinn sem Jómfrúin þjónustar hana. „Við erum auðvitað sendiherrar danskrar matarmenningar og danskrar menningar yfirhöfuð í Reykjavík, þannig að það er kannski ekki skrítið að drottningin vilji tékka á þessum „ambassadorum“ sínum,“ bætir Jakob við, eldhress.

„Við lifum í voninni um að fá símtal frá dönsku hirðinni um það hversu ánægð hún hafi verið, það væri gaman.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert