Bjarnarfoss hlýtur Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, og Margrét Björk Björnsdóttir veittu …
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, og Margrét Björk Björnsdóttir veittu verðlaununum viðtöku fyrir hönd Snæfellsbæjar og eru hér með Skarphéðni Berg Steinarssyni ferðamálasjóra. Ljósmynd/Aðsend

Verkefnið „Bjarnarfoss í Staðarsveit – aðgengi fyrir alla allt árið“ hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálstofu árið 2018 sem voru afhent í dag.

Verkið var unnið á árunum 2015 - 2016 og er „gott dæmi um hvernig heimafólk og sveitarfélag, með liðsinni Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, hafa unnið faglega að uppbyggingu áningarstaðar þar sem allir geta notið fallegrar náttúru,“ að því er fram kemur í tilkynningu frá Ferðamálastofu. Staðurinn er nú aðgengilegur allt árið.

Fallegur áningarstaður fyrir alla til að njóta

Bjarnarfoss er tignarlegur foss sem fellur fram af hamrabrúninni upp af Búðum á Snæfellsnesi og blasir hann við vegfarendum sem fara um þjóðveginn á sunnanverðu Snæfellsnesi og því ekki að undra að hann hafi dregið til sín ferðafólk í auknu mæli.

Snæfellsbær sótti um í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og fékk 10 milljóna króna styrk til að gera göngustíg, göngubrú, áningarstað, bílastæði og skilti. Áður hafði sveitarfélagið fengið tæpa hálfa milljón til hönnunarvinnu. Markmið styrkveitinganna var að vernda viðkvæma náttúru og bæta aðgengi ferðamanna að fossinum.

Umhverfisverðlaun veitt frá árinu 1995

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er þetta því í 24. sinn sem þau eru afhent. Verðlaunin eru nú í þriðja sinn veitt fyrir verkefni sem hlutu styrk úr Framkvæmdasjóði ferðmannastaða á tímabilinu 2014-2016 og voru til fyrirmyndar. Það þýðir að verkefninu sé lokið, reglum framkvæmdasjóðsins fylgt og það hafi verið í samræmi við umhverfisstefnu Ferðamálstofu og áherslur Framkvæmdasjóðsins um sjálfbæra þróun, gæði hönnunar og skipulags.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert