Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað að tveir menn skuli sæta farbanni til 1. febrúar að kröfu lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Mennirnir eru starfsmenn PCC á Bakka við Húsavík og eru grunaðir um líkamsárás hvor gegn öðrum í vistarverum PCC.
Meint líkamsárás átti sér stað í vistarverum PCC við Húsavík 3. nóvember.
Héraðsdómur hafði úrskurðað mennina í þriggja mánaða farbann, til 1. febrúar, en annar mannanna kærði úrskurðinn til Landsréttar sem stytti farbannið til 17. desember. Það hefur nú verið framlengt eins og áður segir.
Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að annar maðurinn (varnaraðili í málinu) hafi kvartað til verkstjóra yfir framkomu hins mannsins. Þrátt fyrir það batnaði framkoma hans ekki. Eftir að hafa setið við drykkju slógust þeir en átök þeirra voru stöðvuð.
Maðurinn sem kvartaði við verkstjórann fór þá að sofa en um 20-30 mínútum síðar segir hann hinn manninn hafa laumast inn í herbergi hans, sest ofan á hann og barið ítrekað með hnefum. Skömmu síðar tók hann lítið túbusjónvarp sem var í herberginu og barði varnaraðila 6 til 7 sinnum í andlit og höfuð af miklu afli.
Eftir að þeir höfðu fallið af rúminu tók varnaraðili fót af rúminu til að reka hinn manninn út og sveiflaði hann höndunum. Staðhæfði hann að hann hafi verið að berjast fyrir lífi sínu.
Hinn maðurinn lýsti því sem gerðist eitthvað á annan veg en aðallega kveðst hann ekkert muna eftir því sem gerðist.