Lögreglan á Norðurlandi eystra vill vara fólk við mikilli hálku á gangstígum og götum á Akureyri en þar er hitastigið komið upp fyrir frostmark. Vegagerðin varar einnig við hálku víða á landinu.
„Rétt er að vekja athygli vegfarenda á því að til morguns verður hiti mjög víða á landinu alveg við frostmark og úrkoma fellur mikið til sem bleytusnjór eða slydda. Ísing og hálka verður viðvarandi við þessar aðstæður, Hlýnar heldur í fyrramálið áður en kólnar aftur seinnipartinn,“ segir á vef Vegagerðarinnar.
Suðvesturland: Aðalleiðir eru að mestu greiðfærar en sumstaðar er krap eða hálkublettir á fáfarnari vegum.
Vesturland: Hálka er á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði en snjóþekja á Bröttubrekku. Hálka eða hálkublettir eru nokkuð víða á láglendi.
Vestfirðir: Flughálka er á Mikladal, annars er vetrafærð mjög víða, hálka eða snjóþekja. Ófært er yfir Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði.
Norðurland: Vetrarfærð, hálka eða hálkublettir .
Norðausturland: Hálka og snjóþekja á Norðausturvegi (85) og hálka í Aðaldal, þæfingur er á Hófaskarði. Snjóþekja og skafrenningur er inn til landsins.
Austurland: Snjóþekja er á Héraði en hálka á Fagradal. Hálka og snjóþekja er með ströndinni. Ófært er um Breiðdalsheiði og Öxi.
Suðausturland: Vetrarfærð er með suðausturströndinni, hálka eða hálkublettir.
Suðurland: Þar er víðast hvar nokkur hálka, krapi eða snjóþekja en þjóðvegurinn er greiðfær. Flughálka er á Rangárvallavegi að vestan.