Virkja viðbragsáætlun vegna kuldans

Kuldakastið reynir á hitaveituna.
Kuldakastið reynir á hitaveituna. mbl.is/Árni Sæberg

Veitur hafa virkjað viðbragðsáætlun í rekstri hitaveitunnar vegna kuldakastsins sem nú stendur yfir. Rennslið um hitaveituæðar Veitna á höfuðborgarsvæðinu náði nýjum hæðum í dag þegar það náði 16 þúsund tonnum á klukkustund að jafnaði í sólarhring. Það er mesta notkun sem sést hefur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum.

Þar segir að ef veðurspár næstu daga gangi eftir gæti þurft að skerða afhendingu til stórnotenda á heitu vatni; þeirra á meðal eru sundlaugarnar. Veitur eru í sambandi við rekstraraðila þeirra vegna stöðunnar. 

Almenningur hvattur til að fara sparlega með heita vatnið

Veitur vinna nú samkvæmt viðbragðsáætlun og fyrsti þáttur hennar er að skora á fólk að fara vel með heita vatnið næstu daga. 

Um 90% af hitaveituvatni eru notuð til húshitunar. Fólk getur sparað heitt vatn og þar með kyndikostnað sinn með því að gæta að því að gluggar séu ekki opnir og útidyr ekki látnar standa opnar lengur en þörf er á. Þá skipta einnig máli stillingar ofna – að óþarflega heitt vatn renni ekki frá þeim – og að ofnarnir séu ekki byrgðir, til dæmis með síðum gluggatjöldum eða húsgögnum. Þá eru heitir pottar við heimili talsvert þurftafrekir á vatnið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert