Bókhald Íslandspósts í samræmi við lög

Íslandspóstur tapar mikið á erlendum sendingum.
Íslandspóstur tapar mikið á erlendum sendingum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Póst- og fjarskiptastofnun hefur farið yfir sundurliðaðar bókhalds- og fjármálaupplýsingar frá Íslandspósti vegna rekstrarársins 2017.

Í tilkynningu frá stofnuninni kemur fram að eftir skoðun gagnanna sé niðurstaðan sú að kostnaðarbókhald og bókhaldslegur aðskilnaður Íslandspósts sé í samræmi við viðurkennda aðferðarfræði og ákvæði laga um póstþjónustu.

Sú neikvæða afkoma sem birtist í starfsþáttayfirliti félagsins vegna samkeppni innan alþjónustu skýrist að mesti leyti af dreifingu erlends pósts eða sem nemur rúmlega 700 milljónum króna. Þetta tap á einkum rót sína að rekja til þeirra alþjóðlegu endastöðvasamninga sem ÍSP er bundin af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert