Lögreglan leitar ökumanns á gráum jeppa

Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir að ná tali af ökumanni …
Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir að ná tali af ökumanni grárrar jeppabifreiðar vegna umferðaróhapps á Ísafirði í vikunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Vestfjörðum hefur óskað eftir því að ná tali af ökumanni grás jeppa vegna umferðaróhapps sem varð á gatnamótum Silfurgötu og Sundstrætis 6. febrúar. Jeppinn er líklega af gerðinni Toyota Land Cruiser eða Mitsubihi Pajero, að sögn vitna. 

Í færslu lögreglunnar á Facebook kemur fram að óhappið átti sér stað klukkan 15:20 síðastliðinn miðvikudag og er ökumaður jeppans talinn geta veitt upplýsingar um málið. Er hann beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444-0400.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert