Einn gistir fangaklefa lögreglunnar á Akureyri eftir nóttina en hann var handtekinn vegna ölvunar og óspekta. Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglunni á Norðausturlandi.
Talsverður erill var hjá lögreglunni á Suðurlandi í nótt enda víða þorrablót og aðrar skemmtanir í umdæminu. Enginn gistir fangaklefa þar.
Á Vestfjörðum var nóttin róleg að sögn varðstjóra í lögreglunni og sömu sögu er að segja af lögreglunni á Egilsstöðum.