Pompeo mættur til Íslands

Michael R. Pom­peo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mætti til Íslands nú á …
Michael R. Pom­peo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mætti til Íslands nú á tólfta tímanum. mbl.is/Árni Sæberg

Ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna, Michael R. Pom­peo, kom til landsins nú á tólfta tímanum og lenti Boeing C-32-flugvélin í Keflavík. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, tók á móti Pompeo á vellinum.

Pompeo mun svo fara til Reykjavíkur með bílalest, en hann mun funda með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra í Hörpu. Því næst mun hann halda í ráðherrabústaðinn og funda með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Munu þau ræða mál­efni norður­slóða og fyr­ir­hugaða for­mennsku Íslands í norður­skauts­ráðinu auk vax­andi efna­hags­sam­skipta ríkj­anna tveggja. 

Búast má við umferðatöfum á stofnæðum á höfuðborgarsvæðinu vegna komu Pompeo.

Vélin sem utanríkisráðherrann kom með.
Vélin sem utanríkisráðherrann kom með. mbl.is/Árni Sæberg
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, tók á móti Pompeo á flugvellinum.
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, tók á móti Pompeo á flugvellinum. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert