Kom til Íslands frá Filippseyjum

Flugfarþegi með smitandi mislinga kom til Íslands frá Filippseyjum 14. …
Flugfarþegi með smitandi mislinga kom til Íslands frá Filippseyjum 14. febrúar síðastliðinn en hann ferðaðist með vélum Icelandair frá London til Keflavíkur og síðan Air Iceland Connect frá Reykjavík til Egilsstaða 15. febrúar síðastliðinn. mbl.is/Árni Sæberg

Einstaklingur með smitandi mislinga sem var í flugi Icelandair frá London til Keflavíkur og síðan frá Reykjavík til Egilsstaða kom frá Filippsseyjum. Þetta kemur fram í frétt á vef embættis landlæknis en líkt og greint var frá fyrr í dag hefur misl­inga­smit hjá ein­um farþega Icelanda­ir-vél­ar­inn­ar verið staðfest. Sami einstaklingur fór svo í flug með Air Iceland Connect daginn eftir.

„Icelandair og Air Iceland Connect, í samvinnu við sóttvarnalækni, hafa sent farþegum ofangreindra véla nauðsynlegar upplýsingar og leiðbeiningar,“ segir í tilkynningu frá embætti landlæknis. Einnig hefur verið haft samband við þá sem hann hefur umgengst þessa daga eftir komuna til landsins og upplýsingum miðlað til heilbrigðisstofnana með áherslu á starfsmenn heilsugæslunnar.

Í þessum leiðbeiningum eru farþegar hvattir til að leita til sinna lækna fram til 7. mars nk. finni þeir fyrir einkennum sem geta bent til mislinga, sérstaklega ef þeir eru óbólusettir.

Flug­in sem um ræðir eru flug FI455 með Icelanda­ir 14. fe­brú­ar og flug NY356 með Air Ice­land Conn­ect 15. fe­brú­ar. Smitið hef­ur áhrif á yfir 200 manns en 147 farþegar voru um borð í vél Icelanda­ir og 70 í vél Air Ice­land Conn­ect.

Litlar líkur á útbreiddum faraldri

Í tilkynningu landlæknis segir að einstaklingur sé smitandi einungis eftir að einkenni koma fram og er smitandi í 7−10 daga. Einkenni mislinga koma yfirleitt fram 10–14 dögum eftir smit en að hámarki geta liðið 3 vikur.

Sóttvarnarlæknir telur litlar líkur á útbreiddum faraldri hér á landi sé gætt að og farið eftir ofangreindum leiðbeiningum enda er almenningur á Íslandi ágætlega bólusettur gegn mislingum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert