Nafn mannsins sem lést í hesthúsahverfi

Davíð Sigurðsson.
Davíð Sigurðsson.

Maðurinn sem lést í hesthúsahverfi Hestamannafélagsins Sörla 6. mars hét Davíð Sigurðsson. Hann slasaðist við útreiðar og lést í kjölfarið af áverkum sínum. 

Davíð var búsettur í Noregi um skeið ásamt fjölskyldu sinni en vann á Íslandi í vetur meðal annars við tamningar. Davíð lætur eftir sig eiginkonu og fimm börn á aldrinum 17 til 30 ára.

Fjölskylda Davíðs vill nýta tækifærið og þakka stuðning og hlýhug sem hún hefur fengið í kjölfar áfallsins. Sérstakar þakkir fær Hestamannafélagið Sörli en Davíð var félagsmaður þar. Skráningargjöld móts 8. mars runnu óskert til fjölskyldunnar.

Útför Davíðs fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 15. mars kl. 15.

Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vilja minnast hans er bent á söfnunarsjóð fjölskyldunnar sem ætlaður er til að reisa minnisvarða um Davíð, 0130-15-010650, kt. 220365-4929.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert