Á leið til byggða

Mjög slæmt veður er á Vatnajökli en þessi mynd var …
Mjög slæmt veður er á Vatnajökli en þessi mynd var tekin þar í nótt. Björgunarfélag Hornafjarðar

Félagar í Björgunarfélagi Hornarfjarðar eru á leið til byggða með mann sem óskaði eftir aðstoð uppi á Vatnajökli um kvöldmatarleytið í gær. Komust björgunarsveitarmenn á snjóbíl til hans um þrjú í nótt.

Samkvæmt upplýsingum frá Björgunarfélagi Hornafjarðar fékk sveitin boð frá manninum um klukkan 19 í gærkvöldi þar sem hann óskaði eftir aðstoð. Maðurinn var á Vatnajökli í leiðindaveðri, þreyttur, kaldur og treysti sér ekki lengra.

Farið var á tveimur bílum og þremur sleðum frá Björgunarfélagi Hornafjarðar en fljótlega var kallað eftir björgunarsveitum frá Höfn að Hellu og snjóbílum frá Reykjavík. 

Björgunarfélag Hornafjarðar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert