Maður í vanda á Vatnajökli

Björgunarsveitir hafa lagt á jökulinn úr tveimur áttum.
Björgunarsveitir hafa lagt á jökulinn úr tveimur áttum. Kort/map.is

Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út vegna ferðamanns, sem er í vanda staddur á Vatnajökli. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg barst tilkynning frá honum rétt fyrir kl. 19, en maðurinn mun vera með laskaðan búnað á göngu sinni um jökulinn og átti af þeim sökum í vandræðum með að koma sér fyrir til næturgistingar.

Veður er ekki gott og fer versnandi. Sveitir af Suðurlandi og Höfn leita nú að manninum og leggja á suðvesturhorn Vatnajökuls úr tveimur áttum, en björgunarsveitir hafa einungis grófa hugmynd um staðsetningu, vitað er hvaðan maðurinn var að koma og hvert hann var að ganga. Fyrstu snjósleðahóparnir eru komnir upp á jökulinn.

Auk sveitanna af Suðurlandi og frá Höfn hefur verið óskað eftir því að snjóbílar björgunarsveita úr Reykjavík verði til taks, ef veðrið versnar eða þá ef það lengist eitthvað í aðgerðunum.

„Það hafa engin skilaboð komið um að hann sé slasaður, bara að hann sé með laskaðan búnað, sem hjálpar honum ekki í þessum aðstæðum,“ segir Davíð Már Bjarnason, fjölmiðlafulltrúi Landsbjargar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert