„Hann verður að fá pásu“

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata. mbl.is/Hari

„Ef mér tekst ekki að sannfæra þig um að kjósa Pírata, þá langar mig a.m.k. að sannfæra þig um að kjósa eitthvað annað en Sjálfstæðisflokkinn.“ Þannig hefst Facebook-færsla Helga Hrafn Gunnarssonar, þingmanns Pírata, þar sem hann gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega.

Hann segir að stefna Sjálfstæðisflokksins sé ekki slæm, og fólk eigi ekki að kjósa hann þess vegna, heldur sé flokkurinn orðinn svo heimakær valdinu að meðferð hans á því einkennist af ábyrgðarleysi.

Það er ekkert sterkara einkenni Sjálfstæðisflokksins heldur en ábyrgðarleysi í öllum skilningi, á öllum sviðum og öllum stundum. Þessi flokkur er með fullkomið ofnæmi fyrir ábyrgð og gerir ennfremur allt sem hann getur til að grafa undan væntingum fólks til ábyrgðar í stjórnmálum,“ skrifar Helgi Hrafn.

Hann segir það, hvað Sjálfstæðisflokkurinn sé rótgróinn hluti af stjórnmálasögunni og stjórnsýslunni, sé viðviðvarandi, sjálfstætt vandamál.

Hann verður að fá pásu, þó það væri ekki nema til að hann troði því inn í hausinn á sér að það sé ekki sjálfsagt að hann sé við völd.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert