Ákærður fyrir nauðgun og líkamsárás

Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni fyrir kynferðisbrot, …
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni fyrir kynferðisbrot, blygðunarsemisbrot og líkamsárás. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðisbrot og blygðunarsemisbrot gegn ósjálfráða manni á heimili sínu fyrir þremur árum.

Að sögn RÚV krefst foreldri mannsins sem var brotið var á þess að hinn ákærði verði dæmdur til að greiða syni sínum 1,5 milljónir króna í miskabætur.

Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni.

Maðurinn er einnig ákærður fyrir líkamsárás fyrir framan skemmtistaðinn Hressó árið 2016. Hann er sagður hafa slegið mann einu hnefahöggi. Sá sem varð fyrir árásinni krefst um 200 þúsund króna í miskabætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert