Akstri hætt klukkan 7

Tíu leiðir Strætó stöðvast klukkan sjö og hefjast ekki að nýju fyrr en klukkan 9 vegna verkfalls bílstjóra Almenningsvagna Kynnisferða. Aðgerðirnar hafa áhrif á um 15 þúsund farþega.

Um er að ræða leiðir 12, 14, 15, 16, 17, 21, 24, 28, 35 og 36. Verkfall þeirra hefst að nýju klukkan 16:00 og stendur til 18:00. 

Hér er hægt að lesa nánar á vef Strætó

Fundur stóð yfir fram á ellefta tímann í gærkvöldi í húsnæði ríkissáttasemjara en var þá frestað fram til klukkan hálftíu í dag. Kjaraviðræður Samtaka atvinnulífsins við Eflingu, VR og samflot fjögurra annarra verkalýðsfélaga hafa staðið yfir alla helgina. Fundað var frá hádegi í gær og héldu samningsaðilar þétt að sér spilunum í allan gærdag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert