Tveir voru fluttir á slysadeild eftir að tveir bílar rákust saman við Kauptún í Garðabæ um ellefuleytið í morgun.
Sjúkrabifreið fór á vettvang ásamt lögreglu.
Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er talið að meiðsl fólksins hafi verið minniháttar.