Skutlari staðinn að verki

Farþeginn viðurkenndi að hafa greitt ökumanninum fyrir akstur frá Reykjavík …
Farþeginn viðurkenndi að hafa greitt ökumanninum fyrir akstur frá Reykjavík til Reykjanesbæjar. mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni um helgina sem ók farþega gegn gjaldi án þess að hafa til þess réttindi, en farþeginn viðurkenndi að hafa greitt ökumanninum fyrir akstur frá Reykjavík til Reykjanesbæjar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Þar segir að hinum síðarnefnda hafi verið tilkynnt að hann væri grunaður um akstur bifreiðar til farþegaflutninga í atvinnuskyni án leyfis, sem og brot á lögum um leigubifreiðar.

Maðurinn reyndi í fyrstu að bera af sér sakir en viðurkenndi svo að hafa ekið farþega gegn gjaldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert