Fimmtán fyrirmyndarfyrirtæki 2019

Frá athöfninni fyrr í dag.
Frá athöfninni fyrr í dag. Ljósmynd/Aðsend

VR hefur veitt fimmtán fyrirtækjum titilinn Fyrirmyndarfyrirtæki 2019. Fyrirtækin voru valin samkvæmt niðurstöðum könnunar sem VR stendur fyrir meðal þúsunda starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Niðurstöðurnar voru kynntar í móttöku á Hilton Nordica hóteli síðdegis.

Sjóvá, Toyota og Eirvík meðal fyrirtækja ársins

Fyrirtæki ársins eru fimmtán talsins, fimm í hverjum stærðarflokki.

Fyrirtæki ársins 2019 í hópi stórra fyrirtækja, þar sem starfsmenn eru 70 eða fleiri, eru LS Retail, Nordic Visitor, PwC, Sjóvá og Vörður tryggingar.

Fyrirtæki ársins 2019 í hópi millistórra fyrirtækja, þar sem starfsmenn eru 30 til 69 eru Cyren, dk hugbúnaður, Tengi, Toyota á Íslandi og TRS.

Fyrirtæki ársins 2019 í hópi lítilla fyrirtækja, þar sem starfsmenn eru færri en 30, eru Attentus – mannauður og ráðgjöf, Bókhald og uppgjör, Egill Árnason, Eirvík og Microsoft Ísland.  

Alls eru fimmtán fyrirtæki í hverjum stærðarflokki fá titilinn Fyrirmyndarfyrirtæki 2019 en lista yfir þau fyrirtæki má finna á vef VR.

Markmið könnunarinnar er að afla upplýsinga um viðhorf starfsmanna til síns vinnustaðar en könnunin er einnig vettvangur starfsmannanna til að segja stjórnendum hvað er vel gert og hvað mætti betur fara.

Árleg könnun VR á Fyrirtæki ársins er send til félagsmanna og fjölda annarra starfsmanna á almennum vinnumarkaði en 118 fyrirtæki tryggðu öllum starfsmönnum sínum þátttöku í könnuninni í ár, óháð stéttarfélagsaðild. Af þeim komust 114 á lista yfir fyrirtæki ársins en ekki náðist lágmarksþátttaka hjá hinum fyrirtækjunum. Einungis fyrirtæki sem bjóða öllum starfsmönnum sínum að taka þátt í könnuninni koma til greina í valinu á Fyrirmyndarfyrirtæki eða Fyrirtæki ársins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert