Beri vott af þöggunartilburðum

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landssamband Framsóknarkvenna (LFK) telur niðurstöðu siðanefndar Alþingis um að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, hafi brotið gegn siðareglum með ummælum sínum bera vott af þöggunartilburðum.

Þetta kemur fram í ályktun sem sambandið sendi frá sér í gærkvöldi.

Þar segir að stjórn LFK telji mikilvægt að veita þingmönnum svigrúm til að orða og veita stjórnsýslulegt aðhald hvað varðar meðferð þingmanna á almannafé líkt og Þórhildur gerði og siðanefnd dæmi sem brot á siðareglum.

„Í ljósi fréttaflutnings af hátterni ákveðinna þingmanna nýverið þar sem höfð voru meiðandi ummæli um aðra þingmenn hefur siðanefnd ekki talið ástæðu til að beita sér í að fordæma eða dæma þá brotlega gegn siðareglum þingmanna. Stjórn LFK telur að meint brot Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur sé ómerkt í stóra samhenginu hvað varðar traust almennings á Alþingi. Álit siðanefndar er að mati LFK frekar til þess fallið að Alþingi bíði frekari álitshnekki en ella,“ segir í ályktuninni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert