4% atvinnuleysi í apríl

1.000 færri voru atvinnulausir í apríl 2019, en á sama …
1.000 færri voru atvinnulausir í apríl 2019, en á sama tíma árið áður. Mynd úr safni. mbl.is/Ómar Óskarsson

4% atvinnuleysi var í aprílmánuði, samkvæmt óleiðréttum mælingum Hagstofu Íslands. Að jafnaði voru 211.500 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði þann mánuð, og jafngildir það 83,0% atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu reyndust 203.000 manns vera starfandi, en 8.400 voru án vinnu og í atvinnuleit.

Var hlutfall þeirra sem voru starfandi því 79,6% og hlutfall atvinnulausra 4,0%, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar.

Samanburður mælinga fyrir aprílmánuð í ár og í fyrra sýnir að vinnuafli fjölgaði um 9.400 manns, á meðan hlutfalli vinnuafls af mannfjölda fjölgaði um 0,9 prósentustig. Starfandi fólki fjölgaði um 10.300 og hækkaði hlutfallið um 1,4 prósentustig, frá því á sama tíma árið 2018.

1.000 færri voru atvinnulausir í apríl 2019, en á sama tíma árið áður er þeir voru  9.400 eða 4,6% af vinnuaflinu. Alls voru 43.500 utan vinnumarkaðar í apríl 2019, en höfðu verið 44.100 í apríl 2018.

Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar var fjöldi fólks á vinnumarkaði í apríl 209.700. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 82,0% og er það 0,2 prósentustigum minna en í mars. Samkvæmt árstíðaleiðréttingu voru atvinnulausir 6.100 í apríl, eða 2,9%, sem er 0,1 prósentustigi meira en í mars. Fyrir sama tímabil lækkaði leiðrétt hlutfall starfandi fólks um 0,3 prósentustig, eða í 79,6% fyrir apríl 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert