Tækniskólinn brautskráði 306 nemendur

Hér má sjá þá nemendur sem fengu verðlaun við brautskráningarathöfnina …
Hér má sjá þá nemendur sem fengu verðlaun við brautskráningarathöfnina á miðvikudag, auk skólameistara og aðstoðarskólameistara Tækniskólans. Ljósmynd/Unnur Magna

Tækniskólinn brautskráði á miðvikudag 306 nemendur frá öllum undirskólum sínum, af alls 58 mismunandi námsbrautum, en brautskráningarathöfnin fór fram í Eldborgarsal Hörpu.

Hildur Ingvarsdóttir skólameistari gerði fjölbreytni í námi skólans, þekkingu, reynslu og fagmennsku að umfjöllunarefni í ræðu sinni við tilefnið. Hannes Árni Hannesson, sem var að útskrifast sem stúdent af K2 Tækni- og vísindaleið, flutti ræðu fyrir hönd nemenda, þar sem hann sagði m.a. frá dvöl sinni í Tækniskólanum og traustum vinasamböndum.

„Ég man sérstaklega eftir fyrsta skóladeginum, ég var alveg rosalega stressaður, mig langaði svo mikið að eignast nýja vini og einhvern veginn hélt ég að samnemendur mínir myndu ekki taka vel á móti mér og að það myndi aldreimyndast góður andi hjá okkur. Fyrsti dagurinn átti hins vegar eftir að vera með skemmtilegustu dögum lífs míns,“ sagði Hannes Árni í ræðu sinni.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá Tækniskólanum að við athöfnina hafi þær Hildur Ingvarsdóttir skólameistari og Guðrún Randalín Lárusdóttir aðstoðarskólameistari báðar verið klæddar í kjóla sem voru útfærðir og saumaðir af útskriftarnemendum í kjólasaumi. Við þessa fallegu kjóla báru þær Hildur og Guðrún svo skartgripi sem nemendur í gull – og silfursmíði smíðuðu.

Dúxar úr Byggingatækniskólanum

Anna Margrét Óladóttir var dúx Tækniskólans á vorönn 2019 og var hún að ljúka námi í tækniteiknun. Semidúx skólans að þessu sinni eru tveir, annars vegar Margrét Guttormsdóttir, sem er einnig að ljúka námi í tækniteiknun og Númi Kárason, sem var að ljúka námi í húsasmíði, en hann er jafnframt Íslandsmeistari í húsasmíði.

Þau þrjú eru öll í Byggingatækniskólanum, en auk hans voru brautskráðir nemendur frá Handverksskólanum, Raftækniskólanum, Skipstjórnarskólanum, Tæknimenntaskólanum, Upplýsingatækniskólanum, Véltækniskólanum og Meistaraskólanum og að auki voru nemendur í Margmiðlunarskólanum og Vefskólanum brautskráðir, að loknu tveggja ára diplómanámi til háskólaeininga.

Fleiri myndir úr athöfninni, sem Unnur Magna fyrrverandi nemandi skólans tók, má nálgast hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert