Varað við umferðartöfum

Framkvæmdum á Kleppsmýrarvegi í Reykjavík verður framhaldið í dag en í tilkynningu sem embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu barst segir að þeim ætti að vera lokið um kl. 14.

Í fyrradag urðu miklar umferðartafir á svæðinu og í nágrenni þess vegna framkvæmda, en við vonum að betur takist til í dag og óþægindi vegna þessa verði í lágmarki, segir á Facebook-síðu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert