Hvalreki við Eiðsgranda

Hvalurinn liggur í fjörunni norðan við Eiðsgranda.
Hvalurinn liggur í fjörunni norðan við Eiðsgranda. Ljósmynd/Eggert Ingólfsson

Hvalhræ liggur nú í fjörunni við norðurströnd Seltjarnarness, en vegfarandi sem átti leið hjá tók meðfylgjandi myndir af hræinu, sem liggur norðan við Eiðsgranda til móts við Rekagranda.

Samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun hefur hvalrekinn verið tilkynntur til stofnunarinnar, en ekki liggur fyrir af hvaða tegund hræið er.

Lögreglu hefur sömuleiðis verið gert viðvart, auk Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Seltjarnarness.

Stærðarinnar belgur stendur út úr hræinu.
Stærðarinnar belgur stendur út úr hræinu. Ljósmynd/Eggert Ingólfsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert