Gekk í veg fyrir strætisvagn

Tvö umferðarslys urðu í umdæminu í vikunni.
Tvö umferðarslys urðu í umdæminu í vikunni. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Gangandi vegfarandi var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir að hann gekk í veg fyrir strætisvagn í Reykjanesbæ í vikunni. Meiðsl hans reyndust þó ekki mjög alvarleg.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar segir að tvö umferðarslys hafi orðið í umdæminu það sem af er vikunnar.

Í gær ók ökumaður, sem ekki virti stöðvunarskyldu, inn í hlið annarrar bifreiðar. Ökumaður þeirrar bifreiðar hlaut áverka á höfði, þó ekki alvarlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert