Reyndi að þvinga peninga af manni

Atvikið átti sér stað í Vestmannaeyjum fyrir þremur árum.
Atvikið átti sér stað í Vestmannaeyjum fyrir þremur árum. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Karlmaður á þrítugsaldri var í Landsrétti í dag dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til ráns og að hafa hótað manni líkamsmeiðingum vegna meintrar skuldar.

Meintur samverkamaður hins dæmda var sýknaður af ákæru.

Samkvæmt dómi gerði maðurinn tilraun til ráns með því að hafa marsnótt fyrir þremur árum farið með mann að hraðbanka í Vestmannaeyjum og reynt að neyða hann til að taka fjármuni úr bankanum. Fórnarlambið átti að hafa skuldað manninum bjór.

Samkvæmt dómi beið sá er sýknaður var fyrir utan bankann en sá sem var dæmdur bað hann um aðstoð.

Maðurinn sem reynt var að láta þvinga fé úr hraðbankanum sagði að maður sem hann bar ekki kennsl á hefði tekið veskið sitt og barið sig í höfuðið. Þá hafi maðurinn farið með sig í hraðbanka til að taka út peninga. Í upptöku úr eftirlitsmyndavélum sem hinn dæmdi með manninum inni í hraðbankanum.

Maðurinn sem var sýknaður kvaðst í yfirheyrslu lögreglu muna eftir látum í anddyri bankans en hann myndi ekki eftir átökum. Hann sagði að hinn dæmdi hefði ætlað sér að innheimta skuld.

Niðurstaða Landsréttar er sú að staðfesta dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir öðrum manninum og er hann dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hinn maðurinn er sýknaður af ákæru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert