Fimmtíu ferðir með yfir fimmtán tonn

Gröfunni var skellt í gúmmíbátinn og svo var siglt af …
Gröfunni var skellt í gúmmíbátinn og svo var siglt af stað. Ljósmynd/LHG

Um síðustu helgi var um 15-19 tonna farmur, þar af ein grafa, fluttur í rúmlega fimmtíu ferðum á gúmmíbát frá varðskipinu Tý í fjöruna við Hornbjargsvita.

Tilefnið er framkvæmdir sem Ferðafélag Íslands er að ráðast í við vitann, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Skipherra á varðskipinu sagði verkið hafa verið „ekkert vesen“ þrátt fyrir að það hafi tekið um það bil sólarhring.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka