Reyndi að tæla barn upp í bíl

Í gærkvöldi reyndi karlmaður að tæla unga stúlku upp í bifreið sína í Reykjanesbæ. Hann sagði henni að móðir hennar væri slösuð eftir umferðarslys og hún þyrfti að koma með honum upp í bifreiðina. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum.

„Stúlkan brást hárrétt við með því að hlaupa í burtu og rakleiðis heim þar sem hún lét vita um atvikið. Leit lögreglu að manninum og bifreiðinni hefur því miður ekki borið árangur, en skráningarnúmerið náðist ekki. Lögreglan á Suðurnesjum biður foreldra að brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bifreiðar með ókunnugum og tilkynna strax um atvik sem þetta,“ að því er segir á Facebook-síðu lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert