Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir svartri bifreið af gerðinni Volkswagen Polo með skráningarnúmerinu GJT69, en henni var stolið í Asparhvarfi í Kópavogi um síðustu helgi.
Sjáist bíllinn í umferðinni skal hringja tafarlaust í Neyðarlínuna, 112, en upplýsingum um hvar bíllinn er niður kominn má sömuleiðis koma á framfæri með tölvupósti á netfangið eirikurb@lrh.is eða á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.