Mótmælir brottvísun Momo Hayashi

Stjórn Íslenska viðskiptaráðsins í Japan.
Stjórn Íslenska viðskiptaráðsins í Japan. Ljósmynd/Aðsend

Stjórn Íslenska viðskiptaráðsins í Japan hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem mótmælt er harðlega brottvísun japanska verslunareigandans Momo Hayashi, sem nýverið greindi frá stöðu sinni á Facebook og óskaði eftir aðstoð vegna stöðu sinnar, og íslensk stjórnvöld hvött til þess að veita henni dvalar- og atvinnuleyfi. 

„Momo hefur búið á Íslandi í fjögur ár, stundað nám í íslensku við Háskóla Íslands í þrjú ár, starfað fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og sem frumkvöðull nýverið opnað verslun í miðbænum. Henni hefur verið synjað um áframhaldandi dvalarleyfi, ferðaþjónustufyrirtækinu sem hún starfar hjá neitað um atvinnuleyfi henni til handa, vísað á að auglýsa starfið á Evrópska efnahagssvæðinu, og Momo gert að yfirgefa landið innan 30 daga. Ekki er viðurkennt að Momo hafi neina sérþekkingu, sem ekki sé hægt að uppfylla af einhverjum á íslenskum eða evrópskum vinnumarkaði.“

Japanir séu jafn velkomnir til Íslands og Íslendingar til Japans

Viðskiptaráðið segir þetta furðulega afstöðu. Íslendingar sem óski eftir því að starfa eða stofna fyrirtæki í Japan eiga þangað greiða leið og þá hafi stjórnvöld og einstaklingar í áratugi stutt íslenska námsmenn rausnarlega í gegnum sjóði og stofnanir, meðal annars í þeim tilgangi að þeir í framhaldinu leggi japönsku atvinnulífi lið. Japan sé næst stærsta viðskiptaríki Íslands utan Evrópu, japönskum ferðamönnum til Íslands fari fjölgandi og tengslin milli landanna styrkist ár frá ári segir ennfremur.

Meðal annars megi nefna nýlegan tvísköttunarsamning og samning sem heimili ungu fólki að vinna í tiltekinn tíma í löndunum. Þá sé undirbúningur fyrir mögulegar viðræður um fríverslunarsamning og samning um flugleyfi hafinn. Bent er á að Japan hafi verið fyrsta landið innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem stutt hafi Ísland eftir bankahrunið 2008. „Íslensk stjórnvöld ættu því að kappkosta að Japanir séu jafn velkomnir til Íslands og Íslendingar til Japans. Ef breyta þarf reglum eða vinnulagi eiga þau að hlutast til um slíkt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert