Færri ferðast til útlanda í ár

Íslendingar ætla frekar að ferðast innalands en utan í sumar.
Íslendingar ætla frekar að ferðast innalands en utan í sumar. mbl.is/Hari

Alls 40% landsmanna kváðust ætla að ferðast bæði innanlands og utan í sumarfríinu þetta árið, 38% kváðust eingöngu ætla að ferðast innanlands og 12% kváðust eingöngu ætla að ferðast utanlands. Þetta kemur fram í könnun MMR á ferðavenjum Íslendinga í sumarfríinu.  

Hlutfall þeirra sem hyggja á ferðalög erlendis í sumar er 52% en það fækkar frá mælingum síðasta árs en þá sögðust 57% ætla að ferðast. Hlutfallið hafði hækkað árlega frá mælingum ársins 2013. Þá fjölgar þeim sem hyggjast ferðast innanlands sem er 78% um tvö prósentustig og hefur hlutfallið ekki mælst hærra frá því í júní 2014. 

Hlutfall þeirra sem kváðust ætla að ferðast bæði innanlands og utan í sumar var hæst á meðal svarenda á aldrinum 18-29 ára eða 44% og fór minnkandi með auknum aldri. Svarendur af höfuðborgarsvæðinu reyndust líklegri til að segjast ætla að ferðast bæði innanlands og utan eða 45% heldur en þau af landsbyggðinni eða 30%.  

Könnunin var framkvæmd dagana 7. til 14. júní 2019 og var heildarfjöldi svarenda 988 einstaklingar, 18 ára og eldri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert