Fyrsti íslenski ungmennafulltrúi hjá SÞ

Esther Hallsdóttir er fyrsti kjörni ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. …
Esther Hallsdóttir er fyrsti kjörni ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún mun sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í september og taka þátt í störfum þess í umboði íslenskra ungmenna. Ljósmynd/Aðsend

Esther Hallsdóttir var kjörin ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda á fulltrúaráðsfundi Landssambands ungmennafélaga (LUF), sem fram fór á Háskólatorgi Háskóla Íslands í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland á slíkan fulltrúa hjá samtökunum. 

Alls voru 10 fulltrúar aðildarfélaga LUF í framboði á fundinum. Esther, fulltrúi Ungra Evrópusinna, hlaut kjör með meirihluta atkvæða, en kosið var í tveimur umferðum.

Esther er verkefnastjóri UNICEF á Íslandi og menntaður mannfræðingur. Þá hefur hún starfað sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossi Íslands auk þess að hafa verið í hagsmunabaráttu stúdenta hjá Stúdentaráði Háskóla Íslands. 

Í framboðsræðu sinni talað Esther fyrir mikilvægi þess að vinna eftir þeirri stefnu sem ungmenni hafa sameiginlega mótað á vettvangi LUF einkum þegar kemur að því að tryggja þátttökurétt.

Hagsmunamálum íslenskra ungmenna komið á framfæri

„Við erum loksins að fá tækifæri til að koma hagsmunamálum íslenskra ungmenna á framfæri á þessum vettvangi. Að hafa í fyrsta sinn fulltrúa á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna er mikill sigur fyrir ungmenni á Íslandi. Ég er þakklát fyrir traustið sem mér er sýnt og hlakka til að vinna með LUF að því að setja þátttöku ungmenna og önnur brýn mál í forgrunn,” er haft eftir Esther í tilkynningu. 

Esther kemur til með að sækja allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York í september og taka þátt í störfum þess í umboði íslenskra ungmenna. Þátttaka ungs fólks í ákvarðanatöku og stefnumótun er ein af megináherslum Sameinuðu þjóðanna og þess vegna hafa aðildarríki um árabil verið hvött til að skipa ungmennafulltrúa sem veita sérfræðiþekkingu, innsýn og nauðsynlega ráðgjöf þegar kemur að sjálfbærri þróun. 

Skipun ungmennafulltrúans og þátttaka hans á aðalþinginu er samstarfsverkefni Landssambands ungmennafélaga, félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og utanríkisráðuneytisins, sem kostar verkefnið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert