Reyna áfram að semja við FEB

Lögmennirnir Sigrún Ingibjörg Gísladóttir og Sigurður Kári Kristjánsson við þingfestingu …
Lögmennirnir Sigrún Ingibjörg Gísladóttir og Sigurður Kári Kristjánsson við þingfestingu málanna í síðustu viku. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrirtöku í málum kaupenda tveggja íbúða í Árskógum 1-3 í Mjódd hefur verið frestað, þar sem lögmenn kaupendanna reyna að semja við Félag eldri borgara í Reykjavík (FEB) um málalok. Þetta staðfestu lögmennirnir, Sigurður Kári Kristjánsson og Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, við fjölmiðlafólk í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, en þar átti fyrirtaka að hefjast kl. 9.

Í síðustu viku var ákveðið að lögmaður FEB hefði til dagsins í dag til þess að leggja fram greinargerð með vörnum félagsins í málinu.

Í gærkvöldi var þó greint frá því að samningaviðræður stæðu yfir um lausn málsins hvað þessa tvo kaupendur varðar og þær munu halda áfram í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert