Formannsskipti urðu nýverið hjá Ungum Evrópusinnum þegar Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir steig til hliðar og Starri Reynisson tók við.
Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir, sem kjörin var formaður Ungra Evrópusinna á aðalfundi félagsins í vor, hefur ákveðið að stíga til hliðar þar sem hún er á leið erlendis í nám. Tilkynnti hún stjórn félagsins um þessa ákvörðun á síðasta stjórnarfundi. Jafnframt lagði hún til að Starri Reynisson myndi taka við embættinu og hlaut sú tillaga einróma samþykki stjórnar, að því er segir í tilkynningu.
Núverandi stjórn félagsins:
Formaður: Starri Reynisson
Varaformaður: Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir
Ritari: Tómas Guðjónsson
Gjaldkeri: Kjartan Þór Ingason
Alþjóðafulltrúi: Inger Erla Thomsen
Meginverkefni stjórnarinnar undir formennsku Starra verða að halda áfram enduruppbyggingu félagsins sem hafin var af fyrri stjórn, ásamt því að stuðla að lifandi umræðu um evrópumál og vekja í auknum mæli athygli á kostum fullrar aðildar að Evrópusambandinu.