Veirusjúkdómar greinast í kjúklingum

Veikir fuglar á búi í Landssveit hafa greindst með bæði …
Veikir fuglar á búi í Landssveit hafa greindst með bæði innlyksa lifrarbólgu og Gumboro veiki. mbl.is/Eggert

Tveir veirusjúkdómar hafa greinst í kjúklingum á Rangárbúinu á Hólavöllum í Landssveit. Búið er í einangrun með það að markmiði að útrýma sjúkdómunum áður en þeir ná fótfestu hérlendis. Þetta kemur fram á vef Matvælastofunar

„Grunur um smitsjúkdóm vaknaði eftir veikindi og aukin dauðsföll á búinu í lok júlí og þá tilkynnti Reykjagarður hf. málið til Matvælastofnunar. Stofnunin setti flutningsbann á búið og upplýsti aðila sem tengdust búinu og alifuglabændur um málið. Allir flutningar til og frá búinu eru bannaðir nema með sérstöku leyfi stofnunarinnar.

Veikir fuglar greindust með bæði innlyksa lifrarbólgu og Gumboro veiki. Veirusjúkdómarnir voru staðfestir með blóðrannsókn og krufningu. Þeir eru tilkynningaskyldir til Matvælastofnunar.

Báðir sjúkdómarnir finnast eingöngu í fuglum og berst smit ekki í menn eða önnur spendýr. Fólk getur ekki smitast af fuglunum eða við neyslu á kjúklingakjöti.

Veirusjúkdómarnir tveir eru útbreiddir í öllum fjórum húsum búsins sem innhalda tæplega 50 þúsund fugla samanlagt. Kjúklingunum er slátrað undir eftirliti Matvælastofnunar og húsnæði þrifið og sótthreinsað í kjölfarið. Smitið virðist bundið við þetta eina bú og ekki er grunur um frekari útbreiðslu. Ekki er vitað með hvaða hætti sjúkdómarnir bárust á búið.

Helsta smithætta er frá fuglum, tækjum og tólum menguðum af fugladriti en fólk getur einnig borið smit á milli búa ef smitvarnir eru ekki virtar. Að fenginni reynslu nágrannalanda er mesta smithættan á búum þar sem sömu flutningstæki eru notuð, t.d. með fóðurbílum, sorphirðu eða sláturbílum. Alifuglabændur eru minntir á að tryggja smitvarnir. Báðar veirurnar eru lífseigar, ónæmar fyrir ákveðnum sótthreinsiefnum og geta lifað lengi í umhverfinu.

Gumboro veiki (e. Gumboro disease / Infectious Bursal Disease - IBD) er bráðsmitandi veirusjúkdómur sem veldur ónæmisbælingu í sýktum fuglum. Þekkt er að innlyksa lifrarbólga komi upp í fuglum smituðum af Gumboro veirunni þótt lifrarbólgan geti komið upp ein og sér. Eingöngu hænsnfuglar geta veikst en aðrir fuglar svo sem kalkúnar eða endur geta verið einkennislausir smitberar fyrir ákveðin afbrigði veirunnar. Ísland hefur fram til þessa verið talið laust við Gumboro veiki.

Innlyksa lifrarbólga (e. IBH - Inclusion Body Hepatitis) er sjúkdómur í eldiskjúklingum sem ekki hefur áður greinst á Íslandi. Hann veldur venjulega veikindum og dauðsföllum í þriggja til sjö vikna gömlum fuglum. Dauðsföll á búinu voru á milli 12% - 23%. Varphænur geta líka smitast og veikindi í fuglum í uppeldi eru þekkt.

Sjúkdómarnir eru landlægir í flestum löndum þar sem alifuglarækt er stunduð. Markmið Matvælastofnunar er að útrýma báðum sjúkdómum hérlendis.“ Segir í frétt Matvælastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert