Skora á Katrínu Jakobsdóttur að styrkja stoðir lýðræðisins en ekki „hola úr þeim“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er beðin um að styrkja stoðir lýðræðisins …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er beðin um að styrkja stoðir lýðræðisins í stað þess að hola úr þeim. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Katrín hefur áður lagt áherslu á mikilvægi þjóðaratkvæðagreiðslna og viðurkennt að stjórn VG og Samfylkingar hafi gert mistök að setja ekki aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæði. Nú er kjörið tækifæri að standa við stóru orðin og leyfa þjóðinni að ráða í svo umdeildu máli sem Þriðji orkupakki ESB er og varðar okkur öll og komandi kynslóðir.“

Þetta segir í tilkynningunni frá Hildi Sif Thorarensen verkfræðingi og Guðmundi Franklín Jónssyni viðskipta- og hagfræðingi. Þau halda úti Facebook-síðunni „Kjósum um orkupakkann“ sem snýst um að safna áskorunum á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um að setja þriðja orkupakkann í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Vantar að kynna báðar hliðar málsins

„Markmiðið er að fá þjóðaratkvæðagreiðslu og ég held að eina leiðin væri að fresta málinu á Alþingi þangað til að hún væri búin að að fara fram. Ég heyri í kringum mig að eru ennþá margir sem eru ekki nógu vel að sér og því er ástæða til að kynna málið betur og leyfa fólki svo að kjósa um það,“ segir Hildur í samtali við mbl.is.

Hún segir málið flókið og það þurfi betri kynningu því misvísandi skilaboð berist fólki úr umhverfi þess. „Það er erfitt fyrir fólk sem leggst ekki yfir lagatexta að átta sig á hvað er rétt og hvað er rangt,“ segir hún bætir við:

„Það vantar betri kynningu og ekki svona einhliða kynningu eins og hefur farið fram á RÚV þar sem önnur hliðin hefur bara verið kynnt. Það þarf að kynna báðar hliðar þannig að fólk geti myndað sér skoðun.“

Skorað á Katrínu Jakobsdóttur að styrkja lýðræðið

Yfir 7.500 manns hafa sett „like“ við Facebook-síðuna og með því skorað á forsætisráðherra að leyfa þjóðinni að kjósa um þetta umdeilda mál.

Með því að setja „like“ við Facebook-síðuna er verið að …
Með því að setja „like“ við Facebook-síðuna er verið að skora á forsætisráðherra. Ljósmynd/Aðsend

Í tilkynningunni er Katrín Jakobsdóttir beðin um að styrkja stoðir lýðræðisins í stað þess að „hola úr þeim“.

„Þingið vinnur í umboði þjóðarinnar og eru flokkar kosnir eftir þeim málefnum sem þeir setja fram fyrir kosningar. Þegar þingmenn ætla beinlínis að ganga þvert gegn stefnuskrá flokks síns er óásættanlegt annað en að þjóðin fái að kjósa um svo umdeilt mál sem Þriðji orkupakki ESB er, enda er það þjóðin sem þingið á að þjóna en ekki öfugt. Lýðræðið er ein af grunnstoðum samfélagsins, það verður umfram allt að virða. Því biðjum við þig, Katrín Jakobsdóttir, um að leggja Þriðja orkupakka ESB í hendur þjóðarinnar og styrkja stoðir lýðræðisins í stað þess að hola úr þeim.“

Ber að vernda náttúru og auðlindir landsins

Þar segir einnig að náttúran og auðlindir landsins ættu að vera óframseljanleg þjóðareign sem beri að vernda, umgangast og nýta á sjálfbæran hátt þannig að hagsmunir almennings séu tryggðir um alla framtíð. Þá þurfi að setja skýrari lög um eigna- og nýtingarrétt þjóðarinnar á jarðeignum, auðlindum, náttúru og lífríki.

„Náttúru Íslands og auðlindir ber að vernda fyrir komandi kynslóðir og auðlindir verði aldrei framseldar erlendum einstaklingum, þjóðum, ríkjasamböndum eða fyrirtækjum.“

Fjölmiðlar fái skýr svör frá forsætisráðherra

Þá er skorað á fjölmiðla sem stundir eru nefndir „fjórða valdið“ að standa undir nafni og knýja fram skýr svör frá forsætisráðherra varðandi það hvar hennar flokkur og grasrót hans stendur gagnvart þriðja orkupakkanum.

„Ef þetta er hráskinnaleikur þar sem allt er lagt undir til að halda saman ríkisstjórn sem án tillits til umhverfisáhrifa vill virkja hverja sprænu og útvega Evrópu ódýrt grænt rafmagn í gegnum sæstreng þá stendur lítið eftir af því „Græna“ í nafni flokks forsætisráðherra,“ segir að lokum í tilkynningunni.

Guðmundur Franklín Jónsson viðskipta- og hagfræðingur og Hildur Sif Thorarensen …
Guðmundur Franklín Jónsson viðskipta- og hagfræðingur og Hildur Sif Thorarensen verkfræðingur. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert