„Við þetta ástand verður ekki unað“

Lögreglufélag Suðurnesja (LS) lýsir yfir stuðningi við Landssamband lögreglumanna vegna ályktunar sem send var fjölmiðlum 7. september og fagnar því að fram fari stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra.

„LS telur að hraða beri úttektinni eins og kostur er svo friður geti skapast sem fyrst um störf lögreglunnar. Mál er varða einkennisfatnað lögreglunnar hafa verið í miklum ólestri um langa hríð og nú hafa málefni bílamiðstöðvar ríkislögreglustjóra o.fl. valdið deilum,“ segir í yfirlýsingunni.

„Við þetta ástand verður ekki unað enda kastar það rýrð á lögregluna og störf hennar sem grefur undan því mikla trausti sem almenningur ber til lögreglunnar. Á endanum gæti þetta ástand því komið niður á öryggi almennings. LS skorar á nýjan dómsmálaráðherra að beita sér fyrir ásættanlegri lausn þessara mála,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka