Vegfarendur fari varlega

Vindaspáin kl. 7 í fyrramálið.
Vindaspáin kl. 7 í fyrramálið. Kort/Veðurstofa Íslands

Spáð er allhvassri eða hvassri vestanátt, jafnvel stormi, með snörpum vindhviðum á Snæfellsnesi fram á nótt, og í Mýrdal og Öræfum í fyrramálið.

Líkur eru á éljum og hálku á vegum norðan- og vestanlands í nótt að sögn Veðurstofu Íslands sem hvetur vegarendur til að fara varlega.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert