Lögbannskröfu vegna smálána hafnað

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. mbl.is/Sigurður Bogi

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur hafnað lögbannskröfu Neytendasamtakanna á innheimtufyrirtækið Al­menna inn­heimtu ehf. og for­svars­mann þess Gísla Kr. Björns­son. 

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, staðfestir þetta í samtali við mbl.is. Samtökin kröfðust lögbannsins vegna þess að þau telja fyrirtækið beita ólög­mæt­um aðferðum við inn­heimtu krafna þannig að hlut­fallstala kostnaðar sé mun hærri en lög heim­ili.

Breki segir að rökstuðningur sýslumanns hafi verið á þá leið að fólk geti sjálft sótt kröfur sem það eigi inni hjá fyrirtækinu. 

„Við ætlum að áfrýja þessu og fara með málið fyrir dóm,“ segir Breki. „Við unum þessu ekki og teljum almannaheill vera undir.“

Krafa Neytendasamtakanna var sett fram með aðstoð VR. Von er á frek­ari aðgerðum gegn smá­lána­fyr­ir­tækj­un­um og þeim fyr­ir­tækj­um sem aðstoða þau við að viðhalda ólög­legri starf­semi gegn neyt­end­um sem eiga erfitt með að bera hönd fyr­ir höfuð sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert