Vilja að borgarar móti nýtt leiðanet strætó

Kort/Strætó

Strætó óskar eftir þátttöku almennings í mótun nýs leiðanets. Markmiðið er að laga Strætó að breyttu skipulagi og innleiða nýjar áherslur þar sem örari tíðni og styttri ferðatími verður í forgrunni. Breytingar eru fram undan í samgöngu- og skipulagsmálum höfuðborgarsvæðsins eins og uppbygging borgarlínu, skipulagsbreytingar á Hlemmi, BSÍ-reit og víðar. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Nýtt leiðanet verður innleitt í skrefum eftir því sem hægt er en stærstu breytingarnar eru áætlaðar um 2023 þegar áætlað er að fyrsta áfanga borgarlínu verði lokið. Lagt er til að skipta leiðanetinu í tvo flokka: stofnleiðir og almennar leiðir og taka fyrstu hugmyndir mið af því.

Stofnleiðanetið er skipulagt sem burðarásinn í nýju leiðaneti og tilgangur þess verður að flytja mikinn fjölda farþega á sem stystum tíma.  Áætlað er að vagnar á stofnleiðum aki á 7-10 mínútna fresti á annatímum og 15-20 mínútna fresti utan annatíma. Borgarlína mun leysa hluta stofnleiðanets Strætó af hólmi eftir því sem sérrými borgarlínu byggist upp, segir í tilkynningu. 

Í nóvember er áætlað að faghópur um leiðakerfismál skili hugmyndum að nýju leiðaneti til stjórnar Strætó. 

Á þessum vef verður hægt skila inn hugmyndum og ábendingum.

Strætó heldur opin hús á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í október þar sem almenningur er hvattur til að kynna sér málið og koma með athugasemdir. 

Dagsetning

Tími

Staðsetning

21. október

15:00-18:00

Háholt í Mosfellsbæ

22. október

15:00-18:00

Mjódd

24. október

15:00-18:00

Smáralind

28. október

15:00-18:00

Fjörður

29. október

12:00-14:00

Háskólatorg

29. október

16:00-18:00

Háskólatorg

31. október

16:00-18:00

Ráðhús Garðabæjar, Garðatorg 7

Frekari upplýsingar eru einnig hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert