Krefst 306 milljóna króna í skaðabætur

Krafa Samherja hljóðar upp á 306 milljónir króna.
Krafa Samherja hljóðar upp á 306 milljónir króna. mbl.is/Ómar Óskarsson

Samherji krefst 306 milljóna króna í skaðabætur og tíu milljóna króna í miskabætur frá Seðlabanka Íslands vegna rannsóknar bankans á meintum brotum fyrirtækisins á reglum um gjaldeyrismál. Þetta kom fram í kvöldfréttum stöðvar tvö

Stærsti hlutinn eða 250 milljónir króna eru vegna kostnaðar vegna þjónustu lögfræðinga.

Máli varðandi ætlaðan upp­lýs­ingaleka frá Seðlabankanum til Rík­is­út­varps­ins í tengsl­um við hús­leit hjá út­gerðarfyr­ir­tæk­inu Sam­herja árið 2012. For­sæt­is­ráðherra hef­ur vísað málinu til lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu. Seðlabankinn lítur málið alvarlegum augum eins og fram kom í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert