13,4% landsmanna eru útlendingar

Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 232.070 manns og 130.790 utan þess í …
Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 232.070 manns og 130.790 utan þess í lok september. mbl.is/Hari

Alls bjuggu 362.860 manns, 186.220 karlar og 176.640 konur, á Íslandi í lok september. Af þeim bjuggu 48.640 erlendir ríkisborgarar á Íslandi, eða 13,4% af heildarmannfjölda.

Landsmönnum fjölgaði um 2.470 á ársfjórðungnum. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 232.070 manns og 130.790 utan þess.

Á 3. ársfjórðungi 2019 fæddust 1.250 börn, en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.560 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 210 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.770 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 500 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 880 íslenskir ríkisborgarar af samtals 1.150 . Af þeim 1.280 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, eða 370 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (310), Noregi (140) og Svíþjóð (210), samtals 670 manns af 950. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara, en þaðan fluttust 790 til landsins af alls 3.050 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 250 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok annars ársfjórðungs bjuggu 48.640 erlendir ríkisborgarar á Íslandi, eða 13,4% af heildarmannfjölda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert