Endaði utan vegar á hvolfi

mbl.is/Eggert

Bílvelta varð við gatnamót Hringbrautar og Heiðarbergs á Reykjanesi í morgun. Tveir voru í bifreiðinni, sem endaði sex metra utan vegar á hvolfi. Þeir sluppu án meiðsla en bifreiðin reyndist vera ótryggð og voru skráningarmerki því tekin af henni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Önnur bílvelta varð í gær þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Reykjanesbraut með þeim afleiðingum að hún endaði utan vegar og fór tvær veltur. Hún virðist hafa numið staðar 76 metrum frá því að ökumaður missti stjórn á henni.

Hann komst sjálfur út úr henni en kvaðst finna mikið til í hálsi og baki þegar lögreglumenn á Suðurnesjum ræddu við hann á vettvangi. Hann var fluttur á Landspítala í Fossvogi.

Þá ók ökumaður bifreið sinni út af Grindavíkurvegi og leikur grunur á að ölvun hafi komið þar við sögu.

Bílvelta varð einnig þegar ökumaður ók út af Grindavíkurvegi. Kenndi hann hálku um óhappið og slapp án teljandi meiðsla.

Nokkuð var svo að menn keyrðu af vettvangi eftir að hafa ekið utan í kyrrstæðar og mannlausar bifreiðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert