Yfir 50 þúsund innflytjendur á Íslandi

Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 15,6% af mannfjöldanum …
Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 15,6% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. mbl.is/Rósa Braga

Alls voru 50.272 innflytjendur á Íslandi eða 14,1% mannfjöldans í byrjun árs. Það er fjölgun frá því í fyrra þegar þeir voru 12,6% landsmanna (43.736). Fjölgun innflytjenda heldur því áfram en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans upp í 14,1%. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Innflytjendum af annarri kynslóð fjölgaði einnig á milli ára, þeir voru 4.861 í fyrra en eru nú 5.263. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 15,6% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega milli ára, og eru nú 6,9% mannfjöldans.

Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar og ömmur. Innflytjendur af annarri kynslóð eru einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn.

Pólverjar fjölmennastir innflytjenda

Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Um áramót voru hér 19.172 einstaklingar frá Póllandi eða 38,1% allra innflytjenda. Þar á eftir koma einstaklingar frá Litháen (5,7%) og Filippseyjum (3,9%). Pólskir karlar eru 40,9% allra karlkyns innflytjenda eða 11.405 af 27.854. Litháískir karlar eru næst fjölmennastir (6,4%) og síðan karlar með uppruna frá Lettlandi (4,2%). Pólskar konur eru 34,6% kvenkyns innflytjenda og næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (5,9%), þá konur frá Litháen (4,9%).

Á Suðurnesjum eru innflytjendur 27% íbúa

Í byrjun árs bjuggu 35.341 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða 63,6% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum en þar voru 26,6% innflytjenda af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 19% mannfjöldans voru innflytjendur eða börn þeirra. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra en þar voru 7,5% mannfjöldans innflytjendur eða börn þeirra.

569 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang árið 2018

Í fyrra fengu 569 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt og er það nokkur fækkun frá fyrra ári þegar 637 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim 569 einstaklingum sem fengu íslenskt ríkisfang höfðu langflestir áður verið með pólskt ríkisfang eða 149 og næst flestir verið með ríkisfang frá Sýrlandi (57). Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt ríkisfang en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meirihluta nýrra íslenskra ríkisborgara. Það átti einnig við í fyrra þegar 310 konur fengu íslenskan ríkisborgararétt en 259 karlar.

Alþjóðleg vernd

Á árinu 2018 fengu 247 einstaklingar alþjóðlega vernd, hafa þeir aldrei verið jafn margir en þeir sem fengu slíka vernd árið 2017 voru 226. Flestir (78) höfðu íraskan ríkisborgararétt, þar á eftir komu 28 flóttamenn með sýrlenskt ríkisfang. Umsækjendum á árinu fækkaði hins vegar um tæplega þriðjung frá árinu 2017. Þeir voru 731 árið 2018, samanborið við 1.068 árið 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert