Lögreglumaður á Suðurnesjum sem var á frívakt fann mikla kannabislykt berast frá húsnæði í umdæminu þar sem viðkomandi átti leið hjá um helgina. Lögreglumenn fóru á vettvang og við húsleit, að fenginni heimild, fannst kannabisefni í kommóðuskúffu á heimilinu. Húsráðandi viðurkenndi að eiga efnið, að því er lögreglan greinir frá.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri nafnlausum upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.
Einnig er hægt að koma ábendingum á framfæri á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum.