Átti að fá milljón fyrir

Lögreglan á Suðurnesjum handtók íslenskan karlmann á þrítugsaldri síðastliðinn föstudag í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eftir að tollgæslan hafði fundið fíkniefni í fórum hans. Um var að ræða tæplega fjögur kíló af hassi sem maðurinn hafði komið fyrir undir fölskum botni í ferðatösku sinni.

Maðurinn var að koma frá Spáni þegar hann var handtekinn. Hann játaði sök og kvaðst hafa átt að fá eina milljón króna fyrir að koma efninu inn í landið. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert