Desemberuppbót til foreldra langveikra og alvarlega fatlaðra barna

Foreldri sem fengið hefur mánaðarlega greiðslu samkvæmt lögunum alla tólf …
Foreldri sem fengið hefur mánaðarlega greiðslu samkvæmt lögunum alla tólf mánuði ársins fær fulla desemberuppbót. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur undirritað reglugerð sem kveður á um að foreldrar barna sem eru langveik eða alvarlega fötluð fái greidda desemberuppbót. Óskert desemberuppbót er 59.748 krónur.

Samkvæmt reglugerðinni á foreldri langveiks eða alvarlega fatlaðs barns sem hlotið hefur greiðslur í desember 2019, samkvæmt 
lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, rétt á desemberuppbót, að því er ráðuneytið greinir frá.

Fram kemur, að foreldri sem fengið hefur mánaðarlega greiðslu samkvæmt lögunum alla tólf mánuði ársins fær fulla desemberuppbót. Foreldri sem fengið hefur greiðslur skemur en tólf mánuði á árinu 2019 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót í samræmi við þann tíma sem það hefur fengið greiðslur.

Tryggingastofnun annast greiðslu desemberuppbótar samkvæmt reglugerðinni og er stefnt að því að hún verði greidd út eigi síðar en um miðjan desembermánuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert