Báðir vinningshafarnir sem skiptu með sér fimmfalda Lottópottinum um síðustu helgi hafa gefið sig fram við Íslenska getspá.
Annar miðinn var keyptur í Krambúðinni í Firðinum, Hafnarfirði, en hinn var keyptur í Lottó-appinu og færðu þeir eigendum sínum rúmlega 30,2 milljónir króna á mann, að því er segir í tilkynningu.
Ungur fjölskyldufaðir sem keypti miðann sinn í Lottó-appinu sagði tilhugsunina að geta greitt upp lánin sín og þá sérstaklega húsnæðislánið væri virkilega góða. Óskemmtileg veikindi hefðu verið að ganga á heimilinu yfir síðustu helgi en það var fljótt að gleymast eftir að fjölskyldan uppgötvaði vinninginn í appinu.
Það var svo eldri maður sem var glaðhlakkalegur þegar hann kom til Getspár ásamt dóttur sinni og 21. barnabarni en meðferðis var einnig vinningsmiðinn góði sem var keyptur í Krambúðinni í Firðinum. Maðurinn er dyggur lottóspilari og spilar alltaf með sömu tölurnar sem hann merkir sjálfur á miðann með blýanti enda mikið fyrir að halda í hefðina þegar kemur að Lottóinu, segir einnig í tilkynningunni.