Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann snemma í morgun sem er grunaður um að hafa brotist inn í bifreiðar í Hlíðunum (hverfi 105) í Reykjavík. Hann var vistaður í fangaklefa á meðan málið er rannsakað.
Skömmu síðar var tilkynnt um líkamsárás í miðborginni, en lögreglan segir að málið sé rannsakað sem heimilisofbeldi. Enginn handtekinn að svo stöddu, segir í tilkynningu frá lögreglu.
Þá var annar maður handtekinn sökum vímuástands að því er lögreglan í Hafnarfirði og Garðbæ greinir frá. Tilkynnt hafði verið um ónæði af hans völdum víðs vegar um hverfið. Hann vistaður í fangageymslu sökum ástands.