Vegagerðin mun bíða með mokstur um Hellisheiði og Þrengsli meðan veður gengur niður, en enn er nokkuð blint á heiðunum, sérstaklega að austan. Þá eru einnig vegirnir um Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði enn lokaðir, sem og Krýsuvíkurvegur og Suðurstrandavegur.